Nei kannski ekki alveg, en…

Eftir mikla umhugsun, þrotlausa undirbúningsvinnu og gríðarlega kókdrykkju þá höfum við Exile liðar ákveðið að opna klanið og bjóða öðrum til útlægðar.

Sem sagt, það sem áður var vinaklanið Exile er núna orðið “hefðbundið” counter-strike clan.

Okkur vantar því liðsmenn og munu 5-10 heppnir fá að setja svona lítið sætt Exile | fyrir framan nikkið sitt.

Skilyrði fyrir inngöngu:

Aldur: það er ekkert aldurstakmark, en til að tryggja að menn hafi sæmilegan félagslegan þroska þá skulu allir meðlimir hafa lokið grunnskólaprófi.

Geta í CS: auðvitað erum við ekki að fara að taka inn menn langt undir okkar getu.

Agi: Gríðarleg áhersla er lögð á aga í klaninu… jafnvel eitt bg eftir skrimm getur varðað við brottrekstur.

Virkni: að sjálfsögðu sækjumst við eftir virkum meðlimum sem eru tilbúnir til að spila oft í viku.

Exile stefnir á skjálfta með amk eitt lið, og jafnvel tvö ef áhugi og mannskapur er fyrir hendi.

Irk-rás: #Clan-exile
talið við einhvern member um þessi mál.

Kv. Exile | Hellchild
Pálmar