Nú í nótt fór sérþjálfaður bardagaflokkur frá herdeild HANNIBALS til orrustu um yfirráð á brú í Zafod svæðinu.

Eftir mikla bardaga og marga fallna félaga var sigur loksins kreistur út úr Sovésku kommunístunum. En ekki var allt einzog sýntist, þegar skoðað var lík af nokkrum vondu köllunum tókum við eftir því að McSulla nokkur var víst að berjast með þeim.

Auðvitað voru þetta SVIK!! Muerte sem við í Hannibal litum á einu sinni sem félaga vora voru greinilega ekkert nema svikarar og rottur! Reyndu að stinga okkur í bakið með slíkum óþverraskap. En allt kom fyrir ekkert, við flettum ofan af hneykslinu og unnum orrustuna.

En ekki halda að Hannibal muni einfaldlega sitja hjá og bíða þar til Muerte finna upp ný ráð til að knésetja okkar göfuga klan!

NEI!

Þess vegna höfum við hér með ákveðið að lýsa yfir stríði við hina illu nasista sem kenna sig við “Muerte”. Við vitum að þeir eru jú fleiri en við, hafa efnavopn sem þeir kalla “OGC” og alls enga samvisku og þar með gæti þetta stríð kostað marga óbreyttra borgara lífið.

En til að fyrirbyggja það leitar Hannibal af bandamönnum í þessari heilögu krossferð gegn soranum í vestri… einnig þekkt sem … “Muerte”.

Undir-ritað
Fulltrúi Hannibals
Sir Fearz Óttarmuz hinn þriðji.<br><br>TuPac = Ofmetinn rappari