Eftir að ég sá demoið í gær hérna af svindlaranum sem að var að spila á Gamedome servernum í fyrrakvöld, datt mér í hug að fara á þann server í gærkvöld… og viti menn, hann var byrjaður að haxxa..

og ég tók screenshot af wonidinu hans, það var það sama og kom hérna á huga í gær…

Þar að auki tók ég demo af öllu þessu… 3 stk, ca. 60mb

Við spiluðum lengi one-on-one og spjölluðum slatta… og ég eginlega veit ekki hvað á að halda um þennan gaur… hvort hann sé 15 ára eða 37 einsog hann sagði við mig í gær…

Þar að auki sagðist hann hafa búið til sitt egið cheat… ?? ég veit ekkert um það náttla, en ég var að leita á netinu um daginn að config guide, þegar ég rakst á tutorial hvernig maður á að gera aimbot… kannski eru þetta ekki flóknar scriptur..

Síða kom það efnilegasta:
Hann kom með frekar stór nöfn úr CS-heiminum okkar í dag, og bar upp á nokkra svindl… “Þeir nota ekki aimbot eða svolleis, bara wallhaxx, og þegar ég sé haxxara, þá VEIT ég 100% að það sé haxxari!”

Ég get ekki meira sagt en að ég sé nokkurn veginn orðlaus…

[VON]Paulsen<br><br>“Have you guys been doin´ a lil´bit of boozin´?” -Mótorhjólalöggan í Dumb&Dumber, sem fékk sér síðan sopa…-