jahérna… þetta var nú meira klúðrið hjá mér.

ÉG var einhvað að chilla og fór að fikta í configgnum mínum í cs, breytti fyrst bara hinu og þessu einzog litnum á crosshairinu og hraðanum á console-inum þegar hann kemur niður og allt bara í gúddí.

En þá fyrst komst ég á bragðið, ég fann fyrir skringilegri þörf fyrir að breyta ýmsu í sambandi við leikinn og ákvað þá að halda áfram. Og giskaði á hinar ýmsustu skipanir í console og náði miklu meira í fps-i.

En það var ekki nóg, næst fór ég einfaldlega í config skránna í cs og breytti ÖLLUM! og þá meina ég ÖLLUM skipunununm þar. Og það var ekkert smáræði sem breyttist í leiknum. Og held ég að ég sé einfaldlega kominn út í það að vera búinn að svindla með smá configg haxi. Góðu hliðarnar á configgnum mínum eru eftir-farandi.

Miklu hærra FPS, sem kom út frá því til dæmis að líkinn hverfa og ég sé enginn bulletholes á veggjum eða skothylki koma út úr byssunni minni.
Finn ekki lengur fyrir flash-böngum. Í staðinn fyrir að skjárinn verður hvítur, koma bara gul strik hingað og þangað um hann.
Léttara að sjá óvini… þeir blikka rauðir allan tíman og lýsa frá sér í risastóran radíus þegar þeir skjóta.
Minna Recoil… veit ekkert hvernig ég fór að því, en recoilið er töluvert minna.
Engir Dimmir staðir, það er allt BJART!

slæmu hliðarnar aftur á móti.

Þessar gulu línur sem koma þegar flashbanginn fer í gang, eru líka út um allt á skjánum mínum bara venjulega.
Sniper-miðið er byrjað að færast hingað og þangað um skjáinn svo ég veit ekkert hvert ég er að skjóta.
Choke og Loss eru búinn að hækka upp úr öllu valdi.
Öll model-skininn eru alveg einz.
Smoke Grenades-inn eru virkilega fokked opp. Miklu meiri reykur kemur og blinda mig alltaf.

Það sem mig langar til að vita, hvernig get ég fengið gamla configgið mitt aftur því þetta sem er núna í gangi er bara tómt tjón.


Fyrirfram þökk…

G_E+H - Fearz
<br><br><img src="http://kasmir.hugi.is/kasmir/umsjon/synamynd.php3?kt=061285-2969&myndnafn=zenofur.jpg">

Grafík og súrtónlist er þema þessarar ofurhetjur en hefur hann nýlega fengið þann mátt að idlea á 56k en það er pheer hjá núbbúm nú til dags.. býr hann útí rassgati og dvelur þar í dágóða stund.