Hvað er að hérna eiginlega??

Hversvegna er verið að lemja á litla TFC korkinum svona?
Gersamlega tilgangslausir póstar um ekkert af viti smbr. “Hí á CS” ofl. álíka rugl. Hérna eru menn að skrifa til þess að “heimta” servera fyrir hitt og þetta rugl, “að því að það hverfur á CS eða DOD korkunum”. Huhh!? Hefur enginn spáð í að megnið af því sem er skrifað er bara tóm tjara og waist og space?????
Betra er að þegja og segja fátt en gáfulegt
heldur en að rausa og mala tóma tjöru alltaf!

Hvers vegna haldið þið að við TFC menn notum korkinn svona lítið? Kannski höfum við bara ekki mikið að segja “daglega” og finnum okkur líka kannski bara annann vettvang til að “spjalla” eins og td. IRCið.
En þegar andinn kemur yfir okkur þá er gott að hafa svo til hreinan kork til að pósta fróðleik og upplýsingum fyrir þá sem HAFA áhuga á TFC (og þeir eru þó nokkrir þó þið viljið ekki trúa því)

Semsagt.
Það EINA sem við förum fram á er að fá að hafa þennann #”$#%%$ kork í friði fyrir bulli og vitleysu, já og látið það vera að pósta skítkast á aðra hérna plís!

p.s. Ekki er nú hægt að skrifa hérna án þess að segja líka…
Vinsamlega hættið með þessar HUGE undirskriftir hérna á þessum korki!!!!!!
(og allstaðar jafnvel .. þetta gerir engann flottari en náungan, en plássið sem fer í þetta pirrar mig ofl.)