Jæja, nú hef ég fengið mig fullsaddan af honum Cyberian eða Necro[j]Winston.

Mál með vexti hérna er það að hann er búinn að banna mig varanlega (eftir minni bestu vitneskju) á dod.is sem er rásin sem ég kýs að sækja sem mest á. Ástæðan fyrir banninu er víst það sem ég hef skrifað um hann á heimasíðunni minni (kazmír) en þá kemur spurninginn, af hverju bannaður fyrir, því ég skrifaði þetta vegna þess að hann bannaði mig. Ég spurði hann út í það og hann svaraði mér, vegna þess að hann hafði fylgst með mér á rásinni í einhvern tíma… og séð þegar ég var að tala um leðursvipur (djók milli mín og einhverra jugend manna sem ég man ekki eftir í augnablikinu (mjög langt síðan)).

En alla vega, á þeim tímum var hann Goodfella minn kæri með op og solleis á necro.is og bara talaði við mig og bað mig um að hætta því… svo ég hætti.

En svo löngu seinna kíki ég inná dod.is og segi eftirfarandi setningu…

halló doddarar.

Cyberian svarar skjótt og örugglega

Halló þurs…

ég segi að mamma hans sé þurs og spyr hann svo af hverju ég sé þurs? Hann svarar ekki spurningu minni en heldur svo áfram að tjá sig í einhverja sýru og endar með því að hann kick/bannar mér.

Og svo blandar Ryan sér inní málið með því að kicka og kannski banna (man ekki alveg) honum [.Abeo.]Bluntman vegna þess að hann var að leitast eftir ástæðum fyrir þessu skyndilega banni á mér.

Stuttu seinna, tala ég við hina ýmsu doddara og bannið fer af mér af sjálfsögðu. En Cyberian gleymir engu og bannar mig í 3.ja skiptið og þá verð ég soldið fúll og skelli eftirfarandi uppl. á síðuna mína.

Þá setti hann mig á shitlist, og sagði mér að taka þetta af heimasíðu minni annars væri bannaið varanlegt… þar sem ég er enginn kelling og ætla ALDREI að beygja undir vald hans þá bætti ég nú bara smá í viðbót á etta… og ef þið leitið á internetinu er hægt að finna aðra síðu þar sem svipað er sagt um hann.

Og þá fór ég á shitlist, en það endist ekki lengur en 2 daga svo var ég aftur kominn inn á dod.is, þá segi ég eftirfarandi…

“PEOPLE, it feels so good to be back” vitnað í Eminem.

og þá kom enn eitt kick-bannið frá Cyberian…

og nú gaf hann mér nú loks ástæðu fyrir þessu og má sjá hana hér… copy-paste-að…


Cyberian þú hagar þér eins of fífl stundum
Cyberian búnað fá leið á þér
Cyberian en ég er að segja þér
Cyberian ef þú tekur þennan gay texta burt
Cyberian þá tek ég bannið af þér

… sem sagt, ég er bannaður vegna persónulegra ástæðna og því ég haga mér einzog fífl stundum… þetta finnst mér persónulega ósanngjart og er bara að tékka á því hvort einhverjir fleiri séu sammála mér.

Og hei, ef þið nenntuð ekki að lesa þetta… then I understand.