Jæja…það hlaut að koma að því…við duttum út úr keppninni eftir tap fyrir Svisslendingum….leikurinn fór 690 - 662. Það gerir það að verkum að við lendum í 3-4 sæti með 5 stig ásamt hollendingum. Þeir hafa hins vegar betra stigahlutfall og því komumst við ekki áfram eins og staðan er núna…þeir eiga eftir að keppa við Breta og nema að sá leikur fari virkilega illa fyrir hollendinga(við erum að tala 500 stiga tap eða eitthvað álíka) þá sitjum við eftir….
Leikurinn spilaðist annars ágættlega…við áttum mjög góðan leik í Caen2 með ping 200 allir allan tímann…rétt töpuðum með 20 stigum….eitthvað sem við töldum að hægt væri að vinna auðveldlega upp heima…..en allt kom fyrir ekki og við urðum að bíða lægri hluta……GG….:)<br><br>Pinko Elephanto
[Necro]Bleiki Fillinn