Hæ Hugarar!

Ég er sannfærður um að þeir eru margir sem sakna dod 1,3 - önnur eins snilldar útgáfa sem þar var á ferð. Sjálfur er ég í öngum mínum og líkt og svo margir hreinlega hættu að spila leikinn þegar dod 2 kom út.

Það er náttúrlega ekki nógu gott. Því hef ég tekið höndum saman við öðlinginn og snillinginn [GGRN]president og ætlum við að setja upp á næstu dögum dod 1,3 server . Hann verður á fight club sem einmitt er þekktur fyrir t.d. gott ping. Þetta verður tilraun og ef engar undirtektir verða er auðvitað sjálfhætt og einfaldlega ýtt á takkann sem slekkur á kerfinu.

Í tengslum við þessar fyrirætlanir væri virkilega gaman að heyra í ykkur doddurum - hvernig hljómar þetta í ykkar eyru?

Kveðja,

[Necro]Winters