Skrim serverarnir eru hugsaðir fyrir lið sem ætla að skrimma, ekki fyrir tvo menn sem ætla að duela. Skrim serveranir eru með lykilorðum sem eru þau sömu og nöfn þeirra. Þessum lykilorðum á EKKI að breyta, ekki heldur meðan á matchi stendur. Þeir sem stunda þetta verða útilokaðir frá þessum serverum og rúmlega það.

Þeir sem stunda að nota mitt nafn til að hóta öðrum spilurum fá á sig bann, bann sem ekki er víst að verði tekið af. Mitt nafn á ekki að nota til að reka menn af skrim server eða þessháttar. Ef [.Hate.]zlave tengir sig við server og fer að skipa mönnum fyrir þá geri ég það á þann hátt að ekki fer á milli mála hver er á ferð.


Ef menn vilja ná athygli minni út af máli sem þeir telja vera áríðandi eða koma með fyrirspurnir þá bendi ég á cs@simnet.is. Í þeim tilvikum sem mikið liggur á er reynandi að ná mér á irc #counter-strike.is td.


Rcon er mörgum hjartans mál. Í dag eru bara 2 aðilar með rcon á Simnet serverunum, ég og HUGO. Ekki stendur til að bæta fleirum við, í bígerð er hinsvegar að setja upp adminmod á alla serverana og setja nokkra inn í það kerfi.


Þetta er bara nokkur atriði sem ég hef tekið eftir að óvissa hefur staðið um.

Vona að þetta hjálpi ykkur eitthvað.

zlave