Topikið segir allt. Eftir að hafa lennt í alveg ömurlegum adminum tvisvar í röð og fullt af leiðinlegum atvikum sem ég nenni ekki að telja upp hér (allt varðandi clan base auðvitað) þá hef ákveðið að “segja af mér” sem manager .is.

Liðið er búið að vera frábært, góður mórall og mikill áhugi hefur einkennt það. Ástæðan fyrir afsögn minni hefur ekkert að gera með það, heldur að öllu leyti liggur ástæðan hjá slappri frammistöðu clanbase. GG .is, þetta var magnaður leikur við Íra þrátt fyrir að þurfa að spila á hreint ömurlegum server allan leikinn.

Krissi tekur við sem manager .is, ég óska þeim góðs gengis í restinni af þessari keppni.