MKK áttu að spila við NecroJ í kvöld en því var víst frestað vegna þess að einhverjir eru hræddir um að ekki séu allir komnir með 2.1. Þetta finnst mér persónulega vera algjört rugl þar sem það eru liðnir 4 dagar frá því að update-ið kom út og mér þykir það bara flokkast undir ábyrgð liðanna að tryggja að allir liðsmenn séu með nýjustu uppfærslur. Þeir sem eru ekki búnir að uppfæra geta nú varla verið mjög aktívir!

Það sem ég er að reyna að segja hér er það að það á einfaldlega að vera á ábyrgð liðanna að allir leikmenn fái uppfærslur um leið og þær koma út svo heilu liðin (deildirnar??) séu ekki að þjást fyrir leti einhverra nokkurra einstaklinga………

P.S. Mér finnst þetta vera frekar litað af einhverju CS máli sem kom upp fyrir nokkru þar sem eitthvað lið var að Bitcha yfir því að leik hafði verið aflýst þar sem þeir voru of seinir í hann því nokkrir liðsmenn vissu ekki af því að 1.4 væri kominn út og þurftu því að DL honum rétt fyrir leikinn.

Ef þú spilar DOD þá veistu að 2.1 er kominn út…

*pissed*<br><br>Of all the things I´ve lost it´s my mind I miss the most…