Núna undanfarna mánuði hef ég tekið eftir því hvað rosalega margir eru farnir að spila CS. Ég man nú bara eftir því þegar þetta var hérna fyrir nokkrum árum hvað fáir voru að spila þetta og það voru bara nokkrir á serverum og kannski nokkur clön líka. Núna er þetta orðið allt öðruvísi. Nú eru skriljón manns á aldrinum 6-40 farnir að spila CS :P og ekki hefur clönunum fækkað. það eru örugglega til fleirri clön heldur fólk sem er að spila þetta er svo mikið :P. Og eins og hann Fixer skrifaði hérna að það væru allir farnir að bögga alla útaf þessum leik og það er ekkert skemmtilegt að vera á server og þá eru allir að kalla alla n00ba og fávita og asna bara útaf því að hann var drepinn. Ég hef líka séð það að svokallaður “n00b” drap einhvern gaur sem var í stóru clani og gaurinn í stóra claninu trompaðist og fór LOL! Já svona er þetta að verða fólk er að pirra hvort annað og svoleiðis. En ég vona að þetta fari bráðum að skána og þá verður þetta enþá skemmtilegra.

Kv. ZiRiuS.Sukkuladibolla :P
"Choose a job you love, and you will never have to work a day in your life." -Confucius