Kæri Rooster, og GGRNarar sem þetta mál snertir!

Sæll, ég vil alls ekki vera að nota þetta bréf sem eitthverja persónuárás á [GGRN] né þig Rooster minn. Eina sem ég vil meina með þessari grein minni að mér finnst þetta skot þitt til BenDover og NeF, vera fyrir neðan beltisstað.

Jæja nú ætla ég að koma mér að málinu ..

Clanið mitt, sH var að etja kappi við heiðurskallana í GGRN í de_aztec. Í hálfleik í þessu umrædda scrimi þá var staðan 11-1 okkar mönnum í vil. Í hálfleik hurfu leikmenn GGRN, í fyrstu héldum við að þetta væri sígó pása, en ef þetta hefði verið sígó pása þá hefði mátt halda að þeir væru að reikja upp marlboro verksmiðjuna ;] En nm, þeir komu bara ekkert inn. Síðan fór einn okkar meðlima inná IRCstöð GGRN, #GGRN og spyr þessarar setningar: “Má ég fá að vita af hverju þið fóruð úr miðju scrimmeríi áðan í de_aztec?”
Þá er spurt að vörmu spori hvaða clani þessi member væri að bera fram spurninguna .. “sH” sagði þessi member okkar, en bara svona uþb. 10 sekúndum seinna fáum við svar frá meðlimi GGRN; “ekkert nema haxxerar”, gaur sem spilaði ekki einu sinni scrimið.
Svaraði þessi sami GGRN limur; “einn mjög þekktur hjá ykkur”, og þá undirstrika ég MJÖG. Meðlimurinn spyr að sjálfsögðu enda einn af leaderum hver þessi “þekkti” svindlmeðlimur okkar svindlaði eða svindlar, hann svarar ekki og hunsar þennan meðlim það sem eftir er kvöldsins.

Stuttu seinna msgar þessi sami meðlimur okkar TuDDa, hinn prýðiskall og frábæran spilara GGRN, og talar um þetta mál. TuDDi er hinn messti skilningsríkur eins og hann er ávallt, enda er erfitt að finna eins skilningsríkan mann eins og TuDDi kann að geyma. TuDDi sýnir þessu góðan skilning, og afsakar þetta, og er sú afsökun alveg vel tekinn. En eitt sem GGRN gaurar vildu taka fram að þetta hafi verið smá spooky, endilega ef þetta er spooky, þá taka það á demo, skoða það, ef útkoman er sú að meðlimir okkar svindli endilega látið mig vita. Það mun ekki lýðast að einn gaur undir okkar tagi sé að svindla. Þessvegna vil ég vinsamlegast benda á Rooster, hanan fagra að endilega tala við þennan meðlim GGRN og biðja hann um að fullyrða ekkert svona út í loftið. Eins og að við höfum eitthvern rosa þekktan svindlara í herbúðum okkar, ef ég vissi betur, þá myndi sá meðlimur, þeas “svindlarinn” ekki spila undir tagi okkar.

Þessi grein mín er ekki skrifuð sem neitt diss á GGRN, vildi bara taka það fram að please, ekki vera að benda á önnur clön eða annan mann ef maður getur tekið til í sínu horni.

Virðingarfyllst og von um skilning,
sH | Fixe