BenDover minn!

(Ég vona að ég sé að ávarpa þig sem BenDover hinn jákvæða og ábyrga en ekki persónurnar “Glæpaheilann Artemis Fowl” eða “Ofurbrókina”. Ef svo er bið ég Preacher að íhuga það sem hér kemur fram meðan hin andlegu veikindi standa yfir.)

Þannig var að ég var að leika mér í cs í gær, altnikkandi einsog versta ifragshóra, og þá varð ég vitni af furðulegri uppákomu. Inni á servernum var maður sem kallar sig [-=NeF=-]Enjoy. Alltaf ef menn sögðu eitthvað, voru að spjalla og/eða hnýta hver í annan, þá komu frá þessum gaur yfirlýsingar á borð við: “Varstu að tala við mig?” “Ertu að biðja um kikk?” “Það eru fullt af NeFmönnum með adm. og ég get sótt þá til að kikka þér.” Og svo framvegis…

Taka ber fram að ég lagði ekki orð í belg en varð vitni af þessum mjög svo hvimleiðu hótunum um kick. Þetta var reyndar svo hlægilegt að það endaði með því að menn voru farnir að gera grín að drengstaulanum enda fátt annað í stöðunni.

Punkturinn er sem sagt sá að það er með öllu óþolandi þessi misnotkun á réttindum og þegar menn eru að gera sig breiða með þessum hætti. Þetta er því miður algengt og leitt að segja en einkum virðast liðsmenn New Elite Forces áberandi í þeim efnum.

Þess vegna bið ég þið, minn ágæti BenDover, að taka til í þínum ranni svo að þessi skítastimpill festist ekki við klanið. Nóg er nú samt því ekki er úr háum söðli að falla þegar orðstýr klansins þíns er annars vegar.

Með bestu kveðju og mundu að þetta segi ég eingöngu með hag þinn og NeF í huga,<br><br><a href="http://www.ggrn.org">[GGRN]</a>Rooste