Er þetta bara ég eða eru allar greinar samþykktar hérna?
Eftir að Sinai hætti og Zlave fór minna að sinna þessu áhugamáli, þá finnst mér gæðin á greinum sem eru samþykktar vera komin niður fyrir allar hellur.
Sú var nú tíðin að maður varð hálf spenntur að sjá nýja grein komna, enda var þar lang oftast eitthvað merkilegt að koma fram, en núna virðast gæðin á greinum vera kominn á sama level og korka póstarnir sem maður nennir ekki að lesa.
Finnst mér þetta vera svolítil þversögn á ummæli Roosters að bæta þetta áhugamál með að henda öllum hjálparpóstum úr cs korknum.
Er þetta einhver einn stjórnandi sem samþykkir allar þessar rugl greinar eða eru stjórnendur hérna almennt bara búnir að minnka standardinn á greinunum svona svakalega?

Kveðja
Senior | Weird Al