hmmm……
byrjum á byrjuninni. Ég hætti (næstum alveg) í cs og fór í dod því ég var kominn með nóg af barnaskapnum í cs. Í DoD fann ég (að mínu mati) betri leik og MUN betra samfélag (yfir heildina). Minni barnaskapur virðist vera í dod heldur en cs, kannski vegna hærri meðalaldurs. Snilldarklön eins og HB og gRiD sem innihalda leikmenn sem eru ALLIR snillingar á sinn hátt eða a.m.k. kurteisir og í gúddí fíling.
Síðan kemur eitthvað svona í gang. Hér er ég að tala um Abeo-Jugend málið, eða öllu heldur umræðuna eftir það. Ég ætla ekkert að fara út í neinar umræður um þennan leik eða atvikið sjálft að svo stöddu. Það eru góðir menn sem sjá um það. Það sem ég vill tala frekar um eru commentin sem eru búin að koma hér á huga. Ég er ekki að tala hér um abeo menn heldur utanaðkomandi aðila. Bókstaflega var ausið skiti yfir jugend liðið og senior án þess að menn vissu NOKKUÐ um hvað málið snérist eða stöðu mála.
Það sem er að fara mest í taugarnar á mér er þessi óvirðing gagnvart okkur. Ég tel okkur sem klan ekki þurfa að sanna okkur fyrir neinum. Við höfum verið hér í langan tíma og höfum gert margt fyrir íslenska DoD samfélagið. Ég yrði alveg jafn pirraður fyrir hönd annarra klana ef þau hefðu lent í þessu. Eina orðið sem ég hef yfir þetta er n00baskapur, sem ég verð of var við í í cs. Því er ég að fá smá panicattack um að íslenska dod samfélagið sé að verða svolítið smitaður af því sem er að í cs samfélaginu.
Það sem er bottomline-ið hér er eftirfarandi: Hugsaðu áður en þú póstar. Fleim skapar BARA leiðindi.
Respect til allra íslenskra DoD klana.
P|bbf3 (Hacky Sack)
Viggi (Real Life)