Hæ og hó!

Vildi bara vekja athygli á hinum ágæta korki sem ber hið gegnsæja nafn “Hjálp”. Vér stjórnendur hér viljum fyrir alla muni að byrjendur geti hér leitað aðstoðar við ýmislegt í tengslum við cs en þá er rétti vettvangurinn “Hjálp”. Einsog menn munu sjá eru hér nokkrir þræðir sem betur ættu heima þar en hér. Þessi þráður er fremur hugsaður fyrir almennt spjall um þetta ágæta áhugamál okkar allra, fréttir, álitamál, jafnvel prúðmannlegar deilur þar sem tekist er á um eitt og annað í tengslum við pólitíkina í cs.

Með bestu kveðju,<br><br><a href="http://www.ggrn.org">[GGRN]</a>Rooste