Í kvöld (sunnudaginn 21 Apríl) verður spilað við landslið Bretlands í Clanbase Nations Cup. Þetta er mikilvægasti leikurinn okkar, og í rauninni ætti hann að skera úr því hvort við komumst áfram eða ekki. Bretar eru með gríðasterkt lið og þetta verður mjög erfiður leikur.

Við höfum áður spilað æfingaleiki við lið Ítalíu sem við unnum 33-11 samtals, og við besta lið Belgíu sem er í clanbase Eurocup sem við unnum mjög stórt líka. Hinsvegar er landslið Bretlands í öðrum klassa fyrir ofan þessi tvö lið …

Hltv og irc bottar verða á staðnum, kíkiði á #team-iceland á ircnet eða #cbnations á irc.quakenet.net (irc bottinn verður á cbnations og hltv ips verða póstaðir þar).