Vá hvað ég hef ekkert fyrir stafni í dag, já þetta segi ég því að mér var litið til baka til þeirra gömlu en góðu tíma þegar cs var uppá sitt besta fyrir ómörgum árum síðan.
Ég er ekki að tala um þá tíma þegar lið á borð við ice,drake,dig,murk,sweet og fleiri önnur góð lið voru að etja kappi um fyrsta sæti á skjálfta ónei, ég er að tala um þá tíð þegar pcw var uppá sitt besta eða þegar um 290 spilendur voru þar inná að auglýsa eftir keppnisrimmu á öllun tímum dags og clanlausir nýliðar að auglýsa sig sem lánsdýr.

Mig langaði nu bara að deila með ykkur vinum mínum þessum tilfinningum sem mér bárust i dag í garð gamla samfélagsins sem mér þótti ju nokkuð vænt um.

En það eru líka góðar fréttir i þessu öllu saman því jú líkt eins og oft áður þá birtist til min ljúflegur maður mér í draumi þegar ég svaf sem fastast með minn ástkæra stríðsbangsa mér við hlið seint í gærnóttu, hann sagði mér að þetta mun allt skána næstkomandi september. :)

Svo ekki örvænta, haldið bara áfram að spila og skemmtið ykkur konungslega.

ps: mér finnst þetta ogeðslega merkilegt og sniðugt þetta sem ég hafði að segja þannig að allar niðurlægingar og skítakomment eru þannig laga séð alveg ónauðsin:):P:P hehe
[cc]hj0rtur_