Ég er nú ekki vanur að vera skrifa hér á Huga og leiðrétta hlutina, en finnst nú hálfpartinn tilneyddur eftir að hafa lesið nýlegan kork um esports.is.

Sá að allmargir töldu að esports.is hefði engan áhuga á Cs 1,6 og vil koma því á framfæri að það er alrangt og er hægt að sjá á spjallinu, fréttatilkynningum ofl. að áhuginn er til staðar.

Er fús til að svara hér spurningum og öðru ef menn vilja forvitnast meira um Cs 1,6 deildina hjá okkur.