Heyrðu ég hef verið að fá alveg mjög mikið af spurningum varðandi stats og slíkt á Gamer og ætla að koma með nokkur svör bara hérna.

HLTV.org eru að skoða hvort þeir geri stats, Pus er að tala við Nomad hvort þeir hendi þessu og þá þarf ég bara að redda þeim server logs.

Ef þeir gera það ekki þá gerum við samt stats eins og af seinustu lönum sem hafa, Kills, Deaths, K/D diff og K/D Ratio

en ég ætla ekki að taka að mér eins og eftir seinasta lan að gera þau fyrir öll lið, þannig þið sjálfir gætuð nú aðeins hugsað út fyrir kassann og hjálpað verulega til.

Það sem þarf að gera er að specca öll demos og taka screenshot af scoreboards í lok hálfleiks, þetta tekur svona c.a 5 mín hvert demo og styttra þegar það er komið smá regla á þetta, ef hvert lið gerir þetta bara þá er hægt að setja þetta stats inn bara beint og demos eru mætt á netið og einn búinn að specca úr hverju liði, eins og ég segi er þetta MJÖG auðvelt og fyrir þá sem eru hvað spenntastir mæli ég með að menn geri þetta svo að þetta verði sneggra inn.

Ég vona samt að HLTV.org taki þetta að sér því það sýnir miklu meiri dýpt á stats, K/D Ratio er ekki beint það sem segir hvort menn hafi verið góðir eða lélegir :))