jó, þannig er mál með vexti að ég náði mér í nýtt power supply því að það heyrðist einsog flugvél í því sem ég var að nota.

næ mér í nýtt sem á að virka í sambandið vött og það, ég tengi það og allt gengur vel en þegar ég kveiki.. gerist akkúrat ekkert svo eftir að ég skoða þetta einhvað set ég gamla í og viti menn, ekkert gerist.

ég heyri að það kemur rafmagn á, kemur svona rafmagnshljóð ef þið vitið hvað ég á við, er búinn að skipta um snúrur, millistykkið virkar og allt það, gæti verið að móðurborðið sé dautt eða hvað?

ég spyr ykkur herramenn, hvar liggur rót vandans? :)
trausti