Fyrst það eru bara tvö onlinemót í gangi núna fann ég mig knúinn til að opna skráningu í enn eitt mótið!

Skráning
Skráning liða verður opin í eina viku (til 23. október 2010) og engin takmörk eru fyrir fjölda liða. Eftir að skráningu lýkur er enginn möguleiki á að koma liði inn í keppnina.

Skráning keppenda verður opin út allt mótið, en strangar reglur gilda um leikmannaskipti.

ATH! Nauðsynlegt er að hver einasti keppandi skrái sig og sitt Steam ID á síðunni til að vera löglegur í mótinu.

Keppnisfyrirkomulag
Keppnisfyrirkomulag verður þannig að skráðum liðum verður raðað eftir styrkleika og dregið í fjóra riðla út frá því. Að riðlum loknum verður svo 8 liða double elimination.

Dagsetningar á leikjum verða ákveðnar þegar skráningu lýkur og verða í samræmi við liðafjölda.

Reglur
Reglur er hægt að skoða hér: http://1337.is/index.php?p=rules

Verðlaun
Þar sem engir styrktaraðilar hafa fengist verða sömu verðlaun og í síðasta móti:

1. verðlaun: ventrilo server í 6 mánuði
2. verðlaun: ventrilo server í 3 mánuði
3. verðlaun: ventrilo server í 1 mánuð

Spurningar
Ef þið hafið einhverjar spurningar, komið þá við á #gegt1337 rásinni á IRCnet og spyrjið.

Bætt við 16. október 2010 - 17:46
Gleymdi víst að nefna að skráningarsíðan er: http://www.1337.is/ :)
hver er þessi vefstjòri og hvað í andskotanum varðar hann um mína undirskrift?