Nú fyrr í kvöld var kvennalandsliði íslands í counter-strike komið á fót. Þjálfarar þess eru DoA|Whoracle og [.Love.]Pikachu. Okkur finnst stelpunum okkar ekki vera gert nógu hátt undir höfði í CS menningunni, og stefnum á að hjálpa þeim að halda merkjum sínum á lofti. Nú þegar höfum við fengið í hópin meginhlutann af liðinu, en ennþá eru lausar stöður. Ef það eru stelpur þarna úti sem spila cs og hafa áhuga á að vera með, þá endilega hafið samband við okkur á #team-iceland.konur , sem verður jafnframt irc rásin okkar á meðan þessu stendur. Stefnan er að skora á karlalandsliðið í laufléttum leik, menningunni til skemmtunar.

Ég vill taka það aftur fram að þetta er fyrir alvöru og ekkert grín, stefnan er sett á að kvennalandsliðið spili von bráðar fyrsta landsleik kvenna í counter-strike. Ég, Björgvin, og Friðrik, DoA|Whoracle, vonumst eftir góðum viðtökum og að stelpurnar verði ánægðar með stjórnun okkar.

#team-iceland.konur , styðjum stelpurnar okkar!!

<br><br>______________________
[.Love.]Pikachu
sxqwsqwsqwsqwsqw