http://www.1337.is/index.php?p=news&id=5

Smá grein sem ég skrifaði fyrir mótið, svo mun ég gera uppgjör hverrar umferðar og velja t.d leikmenn umferða og slíkt út frá stats og því sem ég sé, þar sem ég hef ágætlega nóg að gera í augnablikinu og sé ekki fram á að geta skrifað um alla leiki væri ég til í að fá nokkra góða penna með mér í lið til að skrifa um leikina í þessu móti.

Ætlum að reyna að hafa nokkuð góða umfjöllun meðan mótið er í gangi og ekki væri verra ef þeir sem ætluðu sér að horfa á leiki þarna mundu pm'a mig á irc og bjóðast til að skrifa smá um hverja leiki fyrir sig, helst að menn taki að sér önnur en sín eigin lið líka til að fá svona skemmtilegra álit sem fólk fer ekki að segja að sé bara skrifað svona útaf þetta var maður í þessu liði.

Finnið mig á #rws.is og #pcw á irc undir einhverskonar shine nicki.