Ég er eiginlega í pínu veseni og var að spá hvort þið gætuð hjálpað mér…

Ég er með cs 1,6 steam, búinn að setja hann upp og allt í lagi með það, en hann er ekki alveg eins og hann á að vera. Ég get bara verið left handed (truflar mig reyndar lítið því mér finnst betra að vera lh), steam in game community virkar ekki og net_graph 3 virkar ekki heldur.
Svo var ég að reyna að nota WeGame til að recorda en þá er eins og þetta sé ekki venjulegi 1,6 og WeGame styðji hann ekki.
Er búinn að re-installa steam og 1,6 og WeGame og allt en ekkert virkar.

Hjálp einhver?

Bætt við 17. janúar 2010 - 18:44
Athugið: Þetta er REDDAÐ.