Væntanlegar breytingar verða á simnet serverum 5 og 6.
Verða gerðar tilraunir með að skipta um server configa á serverunum og því reynt að gera serverannna betri.

Verður skipt hugsanlega með viku fresti og ef vel lætur, gætu einhverjir af nýju server configunum orðnir varanlegir enda hinir núverandi mögulega komnir til ára sinna.

Bið ég cs spilara um að skilja að hér er vilji til staðar til að bæta serveranna.

Ef menn verða óánægðir með nýju serveranna t.d. hátt choke, ms, loss, hærra ping, fps drop osfr þá endilega senda skilaboð á DREDINN á irc þar sem ég mun taka saman hvernig hver config er að standa sig.

Að sjálfsögðu prófa rcon hafar símans líka serveranna en geta notendur sagt sína skoðun eða reynslu frá nýju configunum.

Þess má geta að nýtt bann system er komið til staðar á simnet serverunum sem gerir svindlurum enn erfiðra en fyrir að komast aftur á servera eftir að vera bannaðir.

Allar bann ákvarðanir eru sameiginlegar, ekki einstaklings ákvarðanir, þannig endalaus skilaboð á mig, vegna þess að ég er active er óþarfi.
-sér í lagi þar sem öll simnet bönn eru framkvæmt af BMP.

Vill minna á að þetta er sjálfboða starf seinustu ára, engin fær borgað fyrir að vera hjálpa fólki, þessi endalausu leiðindi sem koma í hvert skipti sem einstaklingar eru bannaðir eru að verða vægast sagt þreytt.

Ef menn eru ekki ánægðir með simnet eða vinnuna í kringum simnet, notiði aðra servera, það er ekki flóknara en það.

Ég vona að fá góð viðbrögð fyrir spilurum og samfélaginu öllu vegna þessara breytinga og verkum okkar.

Eigið góðar stundir.