Það er ekki kominn nein spá fyrir Hringinn svo ég ákvað að skella inn minni spá. Er ekki alveg klár á því hvaða lið fara á mótið en ég geri þetta eftir minni bestu vitund.

1. Seven - Nokkrum klössum fyrir ofan alla. Mpv: Andrig

2. Rws - Spila ekki mikið en það skiptir ekki máli því að þeir hafa spilað saman í mörg ár og standa sig ALLTAF vel á lani. Mvp: Óðinz

3. Celphtitled - Hafa verið að lana núna saman í einhvern tíma. Ef þeir ná ekki á top3 þá er kannski tími til kominn að segja þetta gott. Mvp: Kaztro.

4. Dlic (Ef þeir fara) - Eru með góðan hóp en ég held þeir leiki þetta ekki eftir frá síðasta sumri. Hef ekkert séð þá spila í sumar en þeir gætu þó náð upp í 2 sætið ef allir fara. Mvp: Instant

5-8. Nova, ninjas , vvv , xfire - Lið sem geta öll unnið hvort annað og öll liðin geta auðveldlega komið sér í hærra sæti en hér um ræðir.
Nova Mvp: Zyth
Ninjas Mvp: Fantur
VVV Mvp: Kutter
xfire Mvp: Stalz

9-12. Heift , ax ,Magic og ?.. Veit ekki mikið um þessi lið en ég hef allaveganna séð þau áður. Heift hefur spilara úr tin sem stóðu sig vel á síðasta lani. Magic komust ágætlega langt síðast en mótherjarnir voru kannski ekki mjög sterkir.

Heift mvp: Silli
ax mvp: Goater
Magic mvp: Pallibondi

Endilega hendir inn ykkar spám/álitum

Gamersmind Edderk


Bætt við 13. ágúst 2009 - 00:07
Gleymdi x/o en þeir verða þarna einhversstaðar líka. skipti á þeim og xfire.