Hvaða músamotta er að ykkar mati best?

Ég er búinn að nota DKT Everglide músamottuna mína núna í ca. 7 ár, búinn að aska á hana, hella gosi 100x, mjólk, annað hvít dót, súkkulaði og hella öðru dóti á hana og er hún eins og ný, amk. sést ekki á henni, en held að það sé kominn tími á að prufa nýtt. ;)

Hvar kaupir maður annars mottur í dag?

Bætt við 8. maí 2009 - 06:54
Ps. megið einnig taka það fram hvernig mýs þið notið.. er sjálfur að nota G5 en langar að prufa
OCZ Equalizer Laser Gaming Mouse, er hún þess virði?