Season 3 endaði þannig að awe unnu þökk sé nettinu (mismun á roundum) en dlic náðu 2. sæti með 42 í nett og veni náðu 3. sæti með 41 í nett. Öll liðin voru með 12 stig og jafnar innbyrðisviðureignir. Öll úrslit getiði séð á www.snidugt.org en með því að ýta á “stig” þá raðast liðin eftir stigum.

Lið sem eru í mótinu núna og ætla að halda áfram senda email á onlinemot@snidugt.com þar sem þeir segja að þeir ætli að halda áfram. Ef það er einhver skráður vitlaust í vitlausu liði þá er þetta tilvalinn tími til að laga það, eða ef það hafa orðið liðabreytingar.

Ný lið skrá sig með því að senda email á onlinemot@snidugt.com og skrá þar clan nafn ~ steamID's og xray linka.

Lið sem voru í mótinu en eru hætt eru einnig beðin um að láta vita með emaili. Season 4 hefst í apríl, fyrsta deadlineið verður í kringum 5. apríl. Verið duglegir að skrá ykkur og þá getum við þess vegna fjölgað í 8 deildir.