Þetta er svo sem ekki merkilegur póstur. Mig langaði bara að vita hvaða leyndu möguleikar felast í “Sjá nánar” optioninu við kannanir. Það var einu sinni hægt að sjá kynjahlutfall á greiddum atkvæðum og gott ef ekki var líka hægt að sjá hver sendi inn könnunina. Bara svona að kasta þessu fram án þess að gera mér fyllilega grein fyrir því hvaða kostir felast í því að sjá þessar tölur eða hvernig þær gætu komið mér að gagni við að taka yfir CS heiminn.

Já mér leiðist.

Simon