Ég hef tekið eftir hvað fólkið hefur breyst mismikið í þáttunum núna undanförnu.
Michelle hefur skánað svo rosalega mikið frá því að hún byrjaði, á sína smelli svona af og til.
Joel var orðin svo mikill vælukjói að hálfa væri nóg, nú hins vegar er hann svo ástfangin af Flick að hann er bara orðin hinn ágætis drengur
Tess var alveg hryllilega leiðinleg, sérstaklega í kringum allt Brandons málið, en núna er hún orðin þessi ágætis stuðpinni
Dee fanst mér aldrei neitt sérlega spes, en núna er hún orðin ein af mínum uppáhalspersónum þarna
Drew og Libby saman eru svo ótrúlega glötuð að ég gæti ælt! Alltaf svo yfirmáta ástfangin eitthvað, alltaf að knúsast og kyssast og segja eitthvað hryllilega væmið við hvort annað. Drew sjálfur er ok einn og sér en Libby er alltaf sama leiðindaskassið
Paul.. BJAKK! Brunandi um á BMX hjólinu sínu, sparkandi í boltann sinn, Alltaf vælandi og heldur að hann sé svo fullorðin. Er í því að heimsækja fullorðna fólkið
Lynn er að gera mig tjúllaða á þessu gleðisflippi sínu í sambandi við Bjútítrí dæmið, hún hefur alltaf verið frekar svona sérstaklega leiðinleg.. en í góða skapinu sínu er hún hræðileg..