Ok í gærkvöldi var ég að spila á mania servernum og allt í einu komu nokkrir menn úr sama clani sem hét [.Dogs.] (man ekki alveg hvernig það var skrifað). Þá byrjuðu miklar umræður um það hvort þetta væri [Love] í “felubúningi” eins og einhver tók til orða. Þegar langt var liðið á leikinn breytti einn liðsmaður [.Dogs.] nafninu sínu í [.Dogs.]Puppy. Eins og flestir vita þá er puppy í öðru clani nefnilega [Love]. Ég var bara að pæla hvort [Love] væru byrjaðir aftur eða væru bara aðeins að leika sér. :)

kv. Sinbeare
ecco Payne