Núna eftir ríflega 26 klst vöku og stanslausrar Counter-Strike spilunar þá hef ég tekið eftir því að samfélagið okkar hér á Íslandi er engan veginn nógu líflegt og engan veginn á faglegum nótunum.

Sem dæmi má nefna það að ég auglýsti hér eftir scrimmi kl. 07:30 og hvað fæ ég? jújú.. ekkert svar!

Þetta er eitthvað sem við Counter-Strike spilarar þurfum að vinna að í sameiningu svo hægt sé að spila Counter-Strike allan sólarhringinn, 7 daga vikunnar, án mikila trafala!

Ég vill þakka fyrir mig og vonandi mun þetta ástand batna!

Kveðja,
demeNte “Ívar”
DEMENTE