Góðan daginn ;)

Fór aðeins að spá í gær þegar við ætluðum að fara spila að það var enginn server laus til þess..

Þessvegna er spurning mín sú langar ykkur í fleiri scrim servera?

Ef svo er þá gæti ég mögulega sett upp tvö stykki þannig.
Þeir myndu vera 100 tick.

Ég er með einn public server atm ( hysill.is:27015 )
Hann virkar fínt, stable 100tick og flestir með svona mesta lagi 10 í ping, er að meða við þegar það voru 10 inná honum.

Ég er með server vélarnar mínar á 100mb ljósleiðara atm.
Enn ég er að fá pláss í vélarsal netsamskipta og þá verða þeir tengdir inná 2x100mb ljósleiðara frá bæði Símanum og Vodafone.

Hvernig lýst ykkur á?
Er eftirspurn eftir fleiri scrim serverum eða er það bara vitleysa í mér?




Bætt við 12. desember 2008 - 10:55
Einnig bjóðum við hjá www.hysill.is uppá CS og CS:S servera til leigu.

Einnig ef þér vantar leikjaþjón fyrir aðra leiki þá ætti ég að geta reddað því.

Síðan kemur upp á mánudaginn vonandi þá er hægt að sjá verð og aðrar þjónustur sem við bjóðum uppá s.s BNCa, Ventrilo servera, Teamspeak, Heimasíðupláss og flest allt, bara tala við okkur um hvað þér vantar og við björgum því.

Ef þið viljið fá verð yfir Leikjaþjóna, VoIP, TeamSpeak eða BNCa sendið mér þá póst á egill@hysill.is ( Það er MSN líka ) eða PM hér.