Hæ. Ég var að spá í þessi classlimit á Fortress-E servernum.

Við MoRoN höfum aðeins rætt þetta okkar á milli og það kom upp spurning hvort þetta er rétt aðferð? Núna (eftir því sem ég best veit) er limit á Engie(2stk) og Demo(2stk) svo er Sniper úti í kuldanum en fyrir vikið virðist allt fyllast af Soldier, HW og Spy, en ég viðurkenni reyndar að síðustu 3 kvöld hefur myndast hörku geim þarna en því þakka ég frekar mannskapnum sem var inni en limitum. Ég kannast ekki við að of margir Engie hafi valdið vandræðum á server nema kannski í einstaka súrum tilfellum, það er frekar að Demo eða HW valdi “Spammi” (ekki það að ég sé að kvarta).

Það sem MoRoN minntist á við mig var að leikurinn er “hannaður” með ákveðna classa í huga og þetta “ÆTTI” að jafnast út undir “normal” kringumstæðum (sem kannski koma ekki nema þegar “oldtæmerarnir” eru að spila) Einnig má líta á þetta þannig að “EF”, allt í einu allir í öðru liðinu gerast Engie (eða einhver annar classi þá) þá má einfaldlega koma á móti með öðrum “öflugri” classa.
Eins ég horfi á málið þá má auðvitað segja sér að þetta “þurfi” til að njúbíarnir hafi aðhald en þetta skemmir fyrir okkur hinum svona stundum allavega.

Það ætti annað hvort að sleppa þessu alveg eða setja “sanngjörn” limit á ALLA classana en ekki loka bara á einn og skammta tvo aðra. Ég væri meira að segja til í að fá 1(-2) Sniper inn ef þetta ætti að verða “réttara”.

M. Kv. SMOOOTH

p.s. Mikið væri gott ef Well færi út þarna … það er DJÖÖ. þreytt orðið (heyri ég Rock2?? :) )