Skráning á Kísildalur Online #1 er hafin á eth@lanmot.is, fram þurfa að koma að lágmarki 5 nicks og steamids.

Það kostar 1000kr per lið á mótið. Lið teljast ekki skráð fyrr en þau hafa borgað. Engar undantekningar.

Þið sendið email með nicks og steamids og ég svara ykkur með upplýsingum um hvert þið eigið að greiða þessar 1000kr.

Mótið verður haldið yfir 1 helgi, síðustu helgina í september (26-28), þetta verður 16liða Double Elim Brackets.

Ég kem með reglur fyrir mótið eftir 1-3 daga, en þær verða nokkurnveginn þær sömu og á LANmótunum. Leyfilegt verður að duckjumpa(upp að vissu marki).

Ef þið hafið einhverjar spurningar sendið mér email á eth@lanmot.is, eða talið við mig á msn, þeir sem það geta.

Þetta mót er í boði kísildals, verðlaun verða tilkynnt á sama tíma og reglurnar.

Kveðja,
Egill