Jæja

Eins og þið vitið kanski þá hefur Mr.Red sagt sig úr MurK liðinu. Margt leiðinlegt hefur átt sér stað eftir þetta óheppilega atvik sem gerðist.

Ég vona að þetta gleymist sem fyrst og að allt geti orðið eins og það var áður.

Eftir að Mr.red hætti í liðinu höfum við verið leader lausir. Eftir smá spjall saman ákváð liðið að ég skildi vera official Leader fyrir MurK ( cs devicion that is).

Einnig hafa verið nokkrar verkaskiptingar innan clansins sem ég tel ekki nauðsynlegt að upplýsa hér.

Aftur á móti í stað þess að cs spilarar á íslandi séu að senda einum og einum MurK memberi email til að joina þá hefur Gamblerinn okkar tekið það að sér og allar fyrirspurnir um að joina er í Gambler@simnet.is, Aftur á móti vill ég minna á að við erum ekki að leita eftir mörgum nýjum spilurum.

Ef þið viljið Scrimm(æfinga leiki) við okkur getið þið alltaf /msg okkur á ircinu en ef þið viljið hafa eithvað formlegt eins og td. viku fyrir eða hverri viku talið þið við Ashtray email ashtray@simnet.is