[.IB.] ætlar að bæta við sig fimm meðlimum á næstunni. Það verða trials í næstu tveimur vikum. Með fullri virðingu fyrir yngstu spilurum þá erum við frekar gamalt clan (aldur meðlima) og viljum halda meðalaldrinum svipuðum(ekkert gefið upp…) og munum því ekki taka mjög unga spilara í trials. Um að gera að sækja um samt..

[.IB.] var stofnað nú í sumar og skipar í dag 21 meðlimum. Clanið tók þátt í ICSN og sló út 3 clön (sem annað hvort hættu að spila strax eftir leik við okkur eða þorðu ekki að mæta okkur…) Stefnan er tekin á Thursinn, Skjálfta, ICSN og CPL jafnvel ef við nennum því…. ;)

Nóg um okkur. Hvað um þig? Langar þig að taka þátt?? Getur þú spilað seint á kvöldin eða á nótinni?? Getur þú tekið þátt í deildarleik 1 eða 2 kvöld í viku??? Ertu orðin(n) nógu gamall/gömul til að taka eigin ákvarðanir???? Kanntu að spila CS?????

Sendu mail með upplýsingum um þig (nafn, aldur, símanúmer, netfang, reynsla í CS)til <a href=“mailto:hakond@simnet.is”>[.IB.]Shagger</a> og við munum hafa samband við þig aftur. Öllum umsóknum verður svarað.