Ég er með smá spurningu til ritstjórnar GGRN snillingana,eruð þið á einhvern hátt tengdir þeirri snilldarsíðu www.baggalutur.com ??

Þetta minnir óneitanlega á ritstíl GGRN þannig að ég skora á alla GGRN aðdáendur nær og fjær að skoða www.baggalutur.com

Hér kemur eitt stutt dæmi

Tekið af www.baggalutur.com

Alex Ferguson, knattspyrnustjóri Manchester United, hefur kært knattspyrnufélagið Liverpool fyrir að nota vélmenni í marki sínu.
“Þessi Jerzy Dudek er bara of góður til að geta verið mannlegur,” sagði Ferguson (60) nötrandi af bræði. “Síðast þegar þeir burstuðu okkur fór ég að velta fyrir mér hvernig hann fór að því að verja svona frábærlega, á meðan okkar markvörður gat ekki rassgat.”
Ferguson kveðst hafa sent Neville bræðurna (11 og 12) í sérstaka njósnaferð til Liverpool og sögðust þeir hafa fylgst með Dudek (29) þar sem hann var að “smyrja sig”.
Phil Thompson (48), aðstoðarknattpyrnustjóri Liverpool, hafði lítið um málið að segja. “Ég sá þessa Neville perverta vera eitthvað að glápa á Jerzy raka sig í búningsherberginu okkar og henti þeim bara öfugum út,” sagði Thompson í spjalli við Baggalút.- SPS

Endilega skoðið þessa síðu

Willkill
Lífið er erfitt .. maður er heppinn ef maður sleppur í gegnum það lifandi. W.C. Fields