Uppá síðkastið hefur DON verið að stækka við sig og nú erum við að auglýsa eftir góðum spilurum. Við höfum tekið eftir að margir góðir spilarar hjá stærri clönum eiga til að falla í skuggan á þeim sem “frægari” eru.
Við erum að reyna að höfða til þeirra og bjóðum þeim spilurum sem ekki eru sáttir við að spila í B eða jafnvel C liðum hjá sínu clani að ganga í DON, tímabundið fyrir skjálfta eða til frambúðar.
Það er góður mórall í claninu og undanfarna skjálfta höfum við verið á styrk hjá hinu góða fyrirtæki “Egill skallagrímsson” og ónefnt pizzafyrirtæki hefur einnig boðist til að styrkja okkur eftir gott gengi hjá AQ liðinu okkar.
Við höfum nokkra mjög góða spilara sem fá ekki að njóta sín vegna þeirra sem verr standa sig og hefur það komið fram í slöku gengi hjá liðinu uppá síðkastið.
Aldurstakmark í clanið er 16 ár og er það til að halda í hinn góða móral sem er í claninu. Við höldum regluleg LÖN og “kakópartý”(án kakós) sem hafa verið með þeim skemmtilegustu sinnar tegundar.
Við hvetjum eindregið góða spilara sem hafa spilað leikinn lengi án þess að njóta réttmætrar athygli til að kynna sér starfsemi clansins og tala við okkur.
Með kveðju frá DON
Guðfeðurnir. :)

Heimasíða clansins er eins og stendur:
<a href="http://www.simnet.is/taranis">http://simnet.is/taranis </a>
og hægt er að fá samband við okkur á ircinu #doncs eða með tölvupósti.
Póstföng:
[DON]Phoenix : taranis@simnet.is
[DON]Gerbil : daj_x@hotmail.com
á irc:
D|TarAniS og fla
Registered Clown