Ég hef greinilega verið alltof fljótur að dæma í þessum leik en ég vill benda á að EKKERT hefur enn verið dæmt. Hogwarts sögðu mér óljósa sögu af hvernig atburðirnir gerðust og ég ætla hér með að koma með einhverjar pælingar um þennan leik og fá álit hjá ykkur CS spilurunum. Ég hef verið önnum kafinn síðustu 2 daga en núna er allt komið í fyrra horf hjá mér, allavega í bili.

Fyrst áttu Hogwarts að spila við Got0wned fyrir 30. apríl en Hogwarts biðja um frest og Got0wned fresta. Svo á leikurinn að vera 9. maí en Got0wned? ná ekki liði svo að Hogwarts vilja sigurinn. Þar beygi ég reglurnar og fresta leiknum um einn dag. Svo eru einhver vesen það kvöld sem þið getið lesið um í síðustu tveimur þráðunum en Hogwarts upplýstu mig ekki nægilega vel um það mál, þannig að ég flýtti mér að setja inn úrslitin af g0 - Hogwarts á síðuna vegna þess að ég þurfti að mæta á nördalanmótsfund einni klst. eftir.
Sagan sem mér var sögð af Hogwarts var að Got0wned? skiptu manni inná í miðjum leik, sem er bannað, og að Got0wned? hefðu verið með stæla, enda hótaði instant að berja allt þetta kvöld (mig meðtalinn, og ég var ekki einu sinni við tölvuna til að svara honum fyrr en nokkrum tímum eftir). Núna fékk ég að vita að þeir skiptu aldrei manni inná, heldur byrjuðu þeir fjórir og 5th kom svo inná í miðjum leik, sem er að sjálfsögðu ekki bannað.

En svo kemur annar vandi sem reglurnar beygja, sá vandi er að doroid spilaði en var óskráður. Þar auðvitað er hægt að beygja reglurnar mjög ,,fairly" á tvær vegu. Til að byrja með tók enginn screenshot af steamIDinu hjá doRoid svo að þess vegna gat þetta verið skráður maður að spila undir öðru nicki, og í öðru lagi hef ég ALLTAF leyft memberum sem hafa verið lengi í einhverju liði að spila í mótinu þrátt fyrir að vera óskráðir.

Þannig að núna held ég að smoke screenshot geti ráðið úrslitum, ef mig vantar ekki einhvern bút sögunnar þar sem að ég hef fengið alveg óteljandi version af henni.

Bætt við 11. maí 2008 - 20:43
Doroid var víst skráður í mótið sem da_dentis, svo að sú beyging á reglu fellur niður.

Hins vegar tók hann ekki smoke screenshot, svo að núna verður mjög erfitt að úrskurða um hvernig þessi leikur endar.