Hib,

Það eru liðnar 6 vikur frá því að Netdeildin hófst og hafa þær einkennst af því hvað fólk á erfitt með að fara eftir skipulagi.

Við náðum að spila fyrstu 4 umferðirnar meira og minna, í 5 og 6 umferð voru spilaðir 2 leikir af 12.

Úrslit úr umferðum má finna hér.

Í komandi viku verða spilaðir 3 leikir í de_dust2.

got0wned? vs seven
crc vs geared up
newtactics vs rws

Hinir þrír leikirnir sem áttu að spilast enda sjálfkrafa 16-0 útaf liðum sem hafa hætt keppni.

cc 16 > 0 rugaming
ninth 16 > 0 oasis
diG 16 > 0 demolition

Stöðuna í riðlunum má finna hér.

8 liða úrslit hefjast strax að riðlum loknum og mætast liðin á eftirfarandi hátt:

1a vs 4b
2a vs 3b
3a vs 2b
4a vs 1b

Spilað verður í de_nuke.

Kv,
Egill Th