Ég fór á einhvern útlendann server um daginn í gegnum all seeing eye. Það var verið að spila map sem heitir warfield eða eitthvað. Þegar ég kem inná sé ég að allir voru í ct þannig að ég fór í t náttúrulega. Þessir gaurar voru allir með clantögg og ég kaupi awp, klifra uppí turn og byrja að slátra þeim. Þeir skjóta auðvitað til baka og drepa mig. Ég reyni að segja þeim að jafna liðin en enginn talaði neitt allann leikinn. Síðan fer ég í ct og sé furðulegheitin. Þeir keyptu sér mismunandi byssur, löbbuðu um völlinn og snéru sér mjög furðulega í hringi. Illmennið ég fer að teamkilla til að sjá hvað þeir gerðu. Þeir gerðu ekkert, skutu ekki til baka o.s.fv. Mér var farið að finnast þetta leiðinlegt þannig að ég fór útaf.

Mig langar að vita hvort þetta hefur komið fyrir einhvern annan.

Kv. ShaX