Mig langar til að óska öllum þeim er hafa lifað og hrærst í CS á árinu til lukku með nýja árið.

Margar öldur hafa verið brotnar á bak aftur á árinu og stoltur er ég af þeim er barist harðast hafa. Margur mun úr öskustónni rísa á komandi ári og ljá kapp sitt við áframhaldandi velgengni vorrar þjóðar á alþjóðavettvangi CS.
Vil ég þakka öllum þeim er ég hef att kappi við og vona að yður fyrirgefist öll þau fólskubrögð er höfð hafa verið frammi á yðar vettvangi.

Vil ég minnast grimmilegra atburðar á árinu sem er að líða og biðja um mínútuþögn handa félögum vor í [.Hate.] og |3D| er liðu undir lok á afstöðnu ári. Megi menn rísa er [GGRN]BlackJesus leggur hendur yfir fallna konunga vor, [.Hate.]Memnoch og |3D|Scout. Þakka ég Konungi og Drottningu vor fyrir farsæla stjórnun á uppvexti okkar í leik og starfi í Reykjavík og á Akureyri.

Að öllu GGRN máli slepptu hlakka ég til að hitta ykkur alla á skjálftum og smellum og þrívíddarsportum, jafnvel lansetrum svei mér þá, og vona að þið eigið gott kvöld í kvöld og leyfið fjölskyldum ykkar þess heiður aðnjótandi að heyra sögu cs á Íslandi þegar allir hafa safnast saman við eldstæðið eftir mikinn sprengifögnuð.

Munið að það styttist í ruggustólinn, barnabörnin á hnjánum, Já krakkar mínir, þegar afi var ungur, gekk hann undir nafninu TuDDi, tilheyrði göfugum hópi ungra manna er kallaði sig [GGRN] og hljóp um vígvelli netsins og framkvæmdi fjöldamorð í stórum stíl.

“Afi hvað var netið”, segir litli kárakokteillinn og snýr vinstra eyranum í hálfhring og kveikir á jákvæðu genaelektróðuflakkinu til að hitta félaga sinn á suðurpólnum.

hehe

Happy New Year Fraggers.

[GGRN]TuDDi*
<img src="