Góðan daginn elsku cs félagar.

Svona í tilefni nýs árs og gleðiríkara lífs, hef ég dundað mér við yfir jólin, að reikna út meðalaldur klana hér á íslandi.

Til að gera langa sögu stutta mun ég ekki nefna nöfn klana né líftíma heldur gera skil á meðaltali hins allmenna cs klans á íslenskum vígvöllum CS.

Heldur brösulega hefur gengið fyrir meðaljóninn að koma klani í heiminn þetta árið. Enda eins og sagan segir er getnaðurinn sjálfur ekki vandamálið, heldur framtíðar bleyjuskiptingar og viðhald. Það eru allir tilbúnir að barna fimm manna hóp en færri til í að ganga með afsprengin og skipta um ljósgrænar sinnepsbleyjur á verðandi csköppum. Þannig að margur góður leikmaðurinn hefur týnt lífinu á fyrstu mánuðum rassaútbrota og þvagfærasviða.
Þeir sem hafa skriðið út í hinn stóra heim og ekki látið blekkjast af vílarbrögðum satans, eigi klanhórur orðið. Þeir eru hinar sönnu hetjur CS á Íslandi.
Engin nöfn í þessum pósti en ef á sækir verður upprennandi klanhórum gerð góð skil síðar.

Samkvæmt útreikningum mínum er er meðallíftími cs klana þetta árið 2.358 mánuðir. Hef ég þótt sleipur í stærðfræðinni og mun senda og bendla þá sem vilja meiri upplýsingar um útreikning þennan jafnharðan og ég er latur.

Mikið spilar inn í ein víðamestu klanhóruskipti sögu íslands í cs…. evil –> DoA … en förum ekki út í þá sálma hér.

Ef mér hefur missést eitthvað smávægilegt þá er nauðsynlegt að þið elsku´félagar bendið mér á villu minnna vega og endurskoðun megi hefjast.

Auglýsi ég hér eftir staðreyndum, sönnum eða lognum, um klanheim cs á íslandi. Endilega skráið í biblíun hér fyrir neðan ykkar náttúruspjöll.


Nýjabruminu er hugað líf á árinu 2002.

Hugum að börnunum í CS.
Gefum Þeim kók.

Gleðilegt nýtt ár og takk fyrir hið liðna.

[GGRN]TuDDi*
<img src="