ég hef tekið eftir því að OF margir CS-spilarar eru að ásaka efstu menn og aðra um svindl og aimbotta og hvað eina án þess að hafa nein rök fyrir máli sínu. Ég hef oft orðið vitni að ásökunum sem hafa við engin rök að styðjast og margoft lent í því að vera sparkað af leikjaþjóna bara út af röngum ásökunum.
Vil ég því einungis beina máli mínu að þessu einstaklingum og biðja þá KURTEISISLEGA að hætta þessu ásökunum nema beinn grunur ásamt sönnunum fyrir svindli liggji fyrir.
þá þarf viðkomandi ekki endi lega að nota say takkann og Öskra! HANN ER AÐ SVINDLA!!! heldur bara taka niður ip tölu viðkomandi ásamt sönnun (td.skjáskoti) og koma því til réttra aðila…
þ.e.a.s. til þeirra sem hafa völdin…
…en til þeirra sem svindla vil ég benda á að hringja upp á Landsspítalann og hefja nýtt líf þar…. eða að minnsta kosti fara í meðferð. (virkaði fyrir vin minn, topaz 8) ).

með fyrirfram þökkum og von um árangur…

Rudolf (með rauða nefið)