On Monday 03 December 2001 06:29 pm, Konrad Snorrason wrote:
> Hér fylgja rcon password á Simnet CS serverana. Reglurnar eru einfaldar.
>
> 1.Svindlarar rcon banid 0
> 2.Kjaftbrúk og leiðindi rcon banid 30
> 3.AFK rcon kick
> 4.Ef um svindl er að ræða takið screenshot af console áður en þið bannið
> viðkomandi og sendið mér svo í pósti cs@simnet.is þegar þið farið af
> servernum.
> 5.Ekki nota rcon til að breyta uppsetningu servers. Mapcycle password
ofl.
> Ef þið viljið breytingar á servernum þá talið við mig um það.
> 6.Ekki auglýsa að þið séuð með rcon. Þetta er ykkur fyrir bestu, ekkert
> eins leiðinlegt og “ hey ertu ekki með rcon?? kikkaðu þessum”
> 7. Tengist atriði 6. Ekki kicka/banna fyrir orð annara. Það eruð þið sem
> eigið að meta hvort þörf sé á aðgerðum en ekki hinn almenni spilari.
>
> Jæja ok kannski ekki svo einfaldar :)



Smá mistök hjá mér áðan, rcon_say er allsekki bannað, en menn verða að nota það eftir bestu skynsemi.

Síðan þessi póstur var sendur út hef ég breytt rcon í 2-3 skipti og fækkað hefur í hópnum mikið síðan þá og leyfi ég mér að segja að í dag eru allir þeir sem hafa rcon fullfærir um að valda því. Auðvitað hafa menn mismunandi skoðanir á því hvernig beri að taka á hlutunum en eins og ég segi, þá eiga þeir ekki að hlaupa til mín í hvert sinn sem eitthvað kemur upp á og ég hefi ekki commentað á áður.

Og að koma fram eins og knifah hér áðan er alveg út í hött, þetta skapar bara illindi og leiðindi sem enginn okkar græðir á.

Auðvitað geta menn fyllst heilagri reiði þegar þeim finnst á þeim brotið en eða þeim finnst sér misboðið. Þeir hinir sömu verða að átta sig á því að mismunandi eru túlkanir manna á því hvernig hegðun og spilamennska leikmanna eigi að vera, sem betur fer eru ekki allir í sama steypta farinu því ef svo væri værum við í vondum málum.

Nú fyrir ykkur sem ekki vita þá eru [.Love.] menn með aktívari spilurum landsins og þeir hafa sýnt ítrekað mikinn áhuga á að hafa áhrif á hlutina og koma sínum hugmyndum að og eru fáir betur til þess fallnir að vera með rcon en þónokkrir úr þeirra úrvali.

MurK hafa ekki sýnt rcon mikinn áhuga nema þá helst þegar þeim finnst eitthvað athugavert. Ég myndi ekkert vilja frekar en að hleypa fleirum úr þeirra hóp í rcongrúppuna, en ég geng ekki um og bíð mönnum rcon einsog sykurmola. Ég skora því á menn sem eru í forsvari fyrir þá að senda mér póst og biðja um rcon og þá fyrir hverja innan hópsins.

Jæja ég ætla ekki að hafa þessi orð fleiri í þetta sinn því ef ég segi meira þá fer ég að búast við því að menn láti af korka “flamei” og fari að gera þetta að persónulegu stríði með hnúum og hnefum :).

gn girlies

sjáumst eftir steikina á morgun ……


zlave*