Jæja gott fólk, ykkur tókst það.

Loksins, þegar eithvað var komið til að stoppa svindlin sem eru í gangi tókst ykkur með endalausu heiladauðu tuði og væli að láta taka það út af serverum og eyðileggja þessa næstum því vellíðan í sambandi við no cheating sem maður var loksins farinn að finna aftur síðan að PB kom fyrst og virtist vera að gera sitt gagn.

Hvað er þetta MEÐ YKKUR, eru þið alveg heiladauðir og eigiði ílla bágt?!?

Þegar þið komið inn á server og serverinn segir : Pleace download PALADIN from www.paladin-anticheat.com, hvað þýðir það?

ÞAÐ ÞÝÐIR AÐ ÞIÐ EIGIÐ AÐ DOWNLOADA DÓTINU!!!! Ekki halda áfram að koma kannski 6 - 7 sinnum inn á serverinn og væla og öskra HVER KICKAÐI MÉR OG HVER BANNAÐI MIG!!! RCON MISNOTKUN, RCON MISNOTKUN!!!

Og kannski eru sumir nógu dauðir til þess að halda að það sé nóg??!?

Nei, þá tekur við að setja það INN!!!

Já og hvernig er það svo gert?

Þú nátturulega veist það ekki því þetta er NÝTT forrit þannig að hvernig væri að LESA SER TIL um það??!?

Þið helvítis vælukjóar sem skuluð gera alla sem reyna að gera gott fyrir þessa CS menningu okkar drulluþreytta og pirraða, þið skuluð fara að drullast til að lesa fucking manualinn!! RTFM!!!!!!

Paladin virkar fínt skal ég seigja ykkur, og allir sem ég veit að hafa nógu mikið vit til að lesa hvernig hann virkar hefur tekist að setja hann inn þeigjandi og vandræðalaust.

Nú ef í einhverjum tilfellum hann virkar ekki, þá er kannski fyrsta málið að biðja um HJÁLP, ekki koma með einhvern helvítis vælupóst á huga um hvað allt sökki og hvað ekkert gangi hjá fucking kónginum sjálfum þér, heldur senda kannski kurteist hjálparbréf á cs@simnet.is og biðja einfaldlega um hjálp, eða biðja jafnvel um hjálp hér, ég hef aldrei séð það að einhver hafi beðið um hjálp og honum hafi ekki verið svarað.

Það er nóg til að hjálpsömu fólki en það fær ógeð yfir helvítis vælinu og þvaðrinu í ykkur sem getið ekki handtak sjálfir og kennið svo öðrum eða öðru um.

Reynið að sjá að þegar einhver er að leggja eithvað að viti til þessarar menningar þá má alveg þakka manninum fyrir líka!!

PALADIN er eithvað sem margir eru búnir að bíða eftir, hvernig væri að gefa forritinu TÆKIFÆRI!!

Það stendur á heimasíðu PALADIN að þetta sé BETA útgáfa og kannski eithvað bögguð, en hvernig eigi þið að vita það, lúðar sem lesa sér aldrei til.

Allir eldri CS spilarar, sem eru búnir að vera í þessum leik lengi vita hvað það er erfitt að gera eithvað í þessum heimi og hvað það gleymist oft að hrósa og ekkert er gert nema skamma, ég legg til að þíð NYJU farið að fatta það líka!

Mér er sama hversu ungir eða gamlir þið eruð, allir hafið þið vonandi lært smá kurteisi gagnvart þeim sem eru að reyna að gera gott fyrir ykkur, og Konni (zlave) er einn af þeim mönnum.

Hvernig væri að þakka manninum einu sinni fyrir í staðinn fyrir að rífa kjaft alltaf og endalaust.

Ég efast STÓRLEGA að hann fái nógu mikið borgað, og Amything líka, til að þeir nenni að hlusta á þetta tuð og væl endalaust.

Látiði VERA að vera sífellt og endalaust að skammast við þá sem eru ykkar vildarmenn, DON´T BITE THE HAND THAT FEEDS YOU!!


Preachin´s over, time for some killing ..

Preacher.