Sælir,

Ég hef verið mikið spurður af því undanfarið afhverju ég nota bara shotgun. Ég man eftir því að hafa séð Fog og Gringo nota shotgun á sínum tíma með ótrúlegri hittni og færni það var eitthvað við þá hoppandi og skoppanid single shot drepa mig endalaust. Þetta fór nátturulega sjúklega í taugnarnar þar sem ég taldi þá vera að leggja mig í einelti :) svo ég ákvað að mastera hana sjálfur.

Oftast er ég að ná mönnum single shot, það er sjaldgæft að ég þurfi 2 og nánast aldrei 3. Ég er að ná mönnum á löngum færum og kemur mér hreinlega á óvart hversu langt stundum. Ég segi stundum að þú getur metið hæfni þína í counter strike á hversu oft þú sérð Haxx/hack og nafnið þitt í setningu. Það hefur aukist til muna eftir að ég tók SG að mér.

Þessi byssa er allt annað en auðveld. Þetta hefur tekið mig langan tíma. Ég vona svo sannarlega að þetta pirrar ykkur á sama hátt og pirraði mig :)

kveðja
kauffman